Lögreglumenn á Suðurlandi hafa venju samkvæmt haft mikil afskipti af ökumönnum nú í sumar. Þegar hafa 267 ökumenn verið stöðvaðir vegna umferðarlagabrota það sem af er júlímánuði.
Flestir voru stöðvaðir vegna hraðaksturs, en ýmis önnur brot hafa einnig komið á borð lögreglunnar.
Ef skoðað er tímabilið frá 15. maí til dagsins í dag hafa 924 ökumenn verið kærðir vegna umferðarlagabrota. Af þessum 924 voru 40% Íslendingar en 60% erlendir ríkisborgarar, en á þessu sama tímabili í fyrra hafði 831 ökumaður verið kærður og var hlutfall Íslendinga og erlendra ríkisborgara það sama og í ár.
Embættið hefur bætt töluvert í eftirlit á þessu og síðasta ári, m.a. með meiri viðveru í uppsveitum Árnessýslu, í Öræfum og svo á hálendinu, en embættið nær yfir um 30% af Íslandi svo eftirlitssvæðið er víðfeðmt og innan þess eru allir stærstu ferðamannastaðir landins.
Í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi segir að lögreglumenn muni eftir sem áður halda áfram að vera með mikið eftirlit á vegum úti, því það sýnir sig að með auknu eftirliti og aðhaldi með umferðinni er hægt að halda fjölda umferðarslysa í skefjum.