Í dag eru 618 manns í einangrun vegna COVID-19 í umdæmi Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, flestir á Selfossi.
Í Árborg eru 198 manns í einangrun og 210 manns í sóttkví, þar af 160 á Selfossi og þar eru 190 í sóttkví.
Í Hveragerði eru 69 í einangrun og 64 í sóttkví og í Grímsnesinu eru 64 í einangrun og 90 í sóttkví.
Þetta kemur fram í tölum frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands og þar má sjá að í dag eru smitaðir einstaklingar í öllum póstnúmerum á Suðurlandi, frá Ölfusi austur á Höfn.