Framboð á útivistar- og prjónavörum mun stóraukast á þjónustustöðvum N1 við hringveginn eftir að samstarfssamningur við 66°Norður, Rammagerðina og Varma var undirritaður. Verður sérstakt sölusvæði fyrir þessar vörur innréttað í nokkrum stöðvum N1, meðal annars á Höfn og Hvolsvelli. Þá er stefnt að því að opna stóra verslun 66°Norður við nýja þjónustustöð N1 í Vík í Mýrdal.
Með samningnum verður úrval íslenska handverksins aukið á N1 með viðbættu framboði á hönnunarvörum frá Rammagerðinni og prjónavörum Varma í samræmi við vaxandi eftirspurn viðskiptavina á landsbyggðinni og einnig erlendra ferðamanna eftir góðum íslenskum útivistarfatnaði og fallegum prjónavörum.
Sjóklæðafatnaðurinn stendur vel fyrir sínu
Ýmir Örn Finnbogason, forstjóri N1, segir að N1 og forveri þess, Olíufélagið, hafi í marga áratugi boðið viðskiptavinum sínum vörur frá Sjóklæðagerðinni, eins og 66°Norður hét áður, og því standi samstarf fyrirtækjanna á gömlum merg. „Sjóklæðagallarnir, gúmmívettlingarnir og fleira voru lengi í öndvegi í samstarfinu sem fólk allt í kringum landið notaði í daglegum störfum; sjómenn, fiskverkafólk, bændur og í raun allir sem unnu og vinna utandyra í rigningum og vosbúð enda er hann enn afar vinsæll meðal sjómanna og bænda, ekki síst í smalamennsku,“ segir Ýmir.
Íslensk hönnun í öndvegi
Ýmir Örn segir að í samræmi við þá löngu sögu sem samstarf fyrirtækjanna byggi á hafi verið ákveðið að útvíkka samstarfið með áherslu á meiri þjónustu við landsbyggðina og því bætist við tveir nýir framleiðendur undir hatti 66°Norður sem eru Rammagerðin og Varma sem framleiði einnig framúrskarandi íslenska hönnun og hágæðavörur. „N1 er mörgum byggðarlögum mjög mikilvægt þjónustufyrtæki, sem við viljum rækta eins og best verður á kosið. Þetta aukna samstarf við 66°Norður er mikilvægur þáttur í þeirri áherslu,“ segir Ýmir Örn Finnbogason forstjóri N1.
Samstarfinu fylgir bætt þjónusta
Bjarney Harðardóttir hjá 66°Norður segir mörg tækifæri felast í samstarfinu fram undan enda séu þjónustustöðvar N1 afar vel í sveit settar víða um land, meðal annars þar sem 66°Norður hafi ekki tekist að sinna eins vel og fyrirtækið hefði viljað. „Við munum velja vörurnar vel sem boðnar verða hjá N1 til að leggja sem best áherslu á framsetningu íslensku hönnunarinnar og handverksins, sem lifað hafa með þjóðinni svo lengi sem raun ber vitni og erlendir ferðamenn sýna orðið mikinn áhuga,“ segir Bjarney.
Allt eru þetta vörumerki sem hafa lengi verið vel þekkt á Íslandi. Rammagerðin hefur sérhæft sig í að bjóða íslenska hönnun, vörumerkið 66°Norður hefur tengst íslenskum atvinnuháttum í 90 ár og Varma hefur frá stofnun árið 1982 verið leiðandi í þróun og framleiðslu á prjónaðri ullarvöru frá Íslandi. Hafa þessi vörumerki í auknum mæli höfðað til breiðari hóps Íslendinga og notið sífellt meiri vinsælda hjá erlendum ferðamönnum.