84 í einangrun á Suðurlandi

sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Í dag eru 84 einstaklingar í einangrun vegna COVID-19 í umdæmi Heilbrigðisstofnunar Suðurlands og hefur fjölgað um fimm síðan í gær.

Þá eru 149 í sóttkví, eftir að hafa verið útsettir fyrir smiti, sem er talsverð fjölgun frá því í gær þegar 122 voru í sóttkví.

Flestir eru í einangrun í Árborg, 24 einstaklingar, þar af 15 á Selfossi. Í Árborg eru 42 í sóttkví, þar af 38 á Selfossi. Þetta kemur fram í tölum frá HSU.

Í gær greindust 108 með kórónuveiruna innanlands, þar af voru 50 utan sóttkvíar, að því er fram kemur á covid.is.

Fyrri greinAlfreð hættir með Selfossliðið
Næsta greinBjörguðu örmagna ferðamönnum úr sjálfheldu