Aðgangi ferðamanna að Núpsstað lokað

Við Núpsstað. sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Heimreiðinni að Núpsstað í Fljótshverfi hefur verið lokað þar sem engin varsla eða eftirlit er tryggt við bæinn.

„Ég átti engan annan kost en að loka heimreiðinni. Þjóðminjasafnið útvegaði starfsmann þarna í sumar en sjálfur á ég heima á Hvoli skammt frá þar sem ég hef verið að byggja upp ferðaþjónustu,“ segir Hannes Jónsson, eigandi jarðarinnar í samtali við Morgunblaðið í dag.

„Ég hef ekki tök á því í augnablikinu að setjast að á Núpsstað þó ég hafi fullan hug á því, auk þess sem húsin eru vart íbúðarhæf,“ segir Hannes ennfremur og bætir við að umgengni ferðamanna við bæinn og bænahúsið hafi verið slæm og því ekki annað fært en að loka heimreiðinni.

Fjallað er um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.

Fyrri greinRáðherra hafnar færslu hringvegar
Næsta greinÁ ofsahraða með fulla smárútu af fólki