Á 149 km/klst hraða undir Eyjafjöllunum

Mynd úr safni. Ljósmynd/Lögreglan á Suðurlandi

Lögreglan á Suðurlandi stöðvaði ökumann á Suðurlandsvegi undir Eyjafjöllum í hádeginu í dag en bifreið hans mældist á 149 km/klst hraða. 

Ásamt ökumanni voru þrír farþegar í bifreiðinni. Nokkuð sterkur vindur var á staðnum og gekk á með dimmum éljum. 

Ökumaðurinn á yfir höfði sér 210 þúsund króna fjársekt og sviptingu ökuréttar í einn mánuð vegna meints brots.

Fyrri greinArnór Bjarki skrifar undir hjá Selfoss Körfu
Næsta greinDagbók lögreglu: 27 teknir fyrir hraðakstur