Ábyrg upplýsingamiðlun við vá

Keilir, Markaðsstofa Reykjaness og Íslenski ferðaklasinn bjóða upp á opinn fyrirlestur á netinu um ábyrga upplýsingamiðlun við vá, mánudaginn 8. mars kl. 11 – 12.

Upplýsingamiðlun er og ætti að vera hluti af viðbragðsáætlun fyrirtækja í ferðaþjónustu. Á fyrirlestrinum fer Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, fagstjóri ferðaþjónustu, útflutnings og fjárfestinga hjá Íslandsstofu, yfir viðbragðsáætlun Íslandsstofu og þá ferla sem fara í gang samkvæmt áætluninni við náttúruvá. Sigríður Dögg fer einnig yfir hvernig fyrirtæki geta nýtt sér þessa ferla og góða starfshætti þegar náttúruvá ber að dyrum.

Viðburðurinn er skipulagður af Nýsköpunarakademíu ferðaþjónustunnar í samstarfi við Markaðsstofu Reykjaness, Keilis, Íslenska ferðaklasans og Markaðsstofu Hafnarfjarðar.

Skráning fer fram hér og er fundurinn öllum opinn og án endurgjalds. Hlekkur á viðburðinn verður sendur út stuttu fyrir fundinn.

Fyrri greinSelfyssingar sprengja 9.000 íbúa múrinn
Næsta greinPrófkjöri Framsóknarflokksins frestað