Sonja Eyfjörð Skjaldardóttir á Selfossi, heppinn greiðandi miða í jólahappdrætti Krabbameinsfélagsins 2018, fékk nýlega afhentan nýjan sjálfskiptan Peugeot 3008 Allure, að andvirði um fjögurra og hálfrar milljóna króna.
Sonja var ekki alveg á því að trúa þessu þegar hringt var í hana til að tilkynna henni um vinninginn. Sonja og eiginmaður hennar, Matthías Bjarnason, voru á ferðalagi erlendis síðasta sumar og leigðu þar bíl. Svo skemmtilega vill til að bílaleigubíllinn var Peugeot 3008 og hjónin höfðu einmitt á orði í ferðinni hvað þau væru hrifin af þessum bíl. Þetta er í fyrsta skipti sem þau eignast nýjan bíl en vinningurinn var einn af 286 skattfrjálsum vinningum í happdrætti Krabbameinsfélagsins.
Fjórðungur vinninganna á Suðurland
Það er líka skemmtilegt að segja frá því að greiðendur miða í jólahappdrættinu á Suðurlandi voru mjög heppnir í útdrættinum, en þeir voru um fjórðungur vinningshafa.
Tekjum af happdrætti Krabbameinsfélagsins hefur fyrst og fremst verið varið til fræðslu um krabbamein og krabbameinsvarnir, útgáfu fræðslurita og stuðnings við krabbameinssjúklinga. Stuðningur við happdrættið hefur gert félaginu kleift að halda uppi öflugu fræðslustarfi í þágu þjóðarinnar. Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins hefur umsjón með framkvæmd og rekstri happdrættis Krabbameinsfélagsins.
Krabbameinsfélagið vill þakka landsmönnum fyrir góðan stuðning í jólahappdrættinu, óskar öllum vinningshöfum innilega til hamingju með vinningana og starfsfólki bílaumboðins Brimborgar fyrir sérlega gott samstarf.