Aðsetur nýrrar Náttúruverndarstofnunar verður á Hvolsvelli. Embætti forstjóra stofnanunarinnar verður auglýst um helgina.
Á vef Stjórnarráðsins kemur fram að aðsetur þriggja nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verði utan höfuðborgarsvæðisins en markmiðið með því er að stuðla að því að starfsfólk starfi í auknum mæli á landsbyggðinni í grennd við viðfangsefnið sem í þessu tilfelli er náttúra landsins, umhverfi og auðlindir.
Höfuðstöðvar Vatnajökulsþjóðgarðs áfram á Höfn
Alþingi samþykkti í júní lög um nýja Umhverfis- og orkustofnun og Náttúruverndarstofnun. Náttúruverndarstofnun tekur við Vatnajökulsþjóðgarði og starfsemi náttúruverndarsviðs Umhverfisstofnunar og taka stofnanirnar til starfa 1. janúar 2025. Höfuðstöðvar Vatnajökulsþjóðgarðs verða eftir sem áður á Höfn í Hornafirði, en þær voru færðar þangað árið 2022.
Áður hafði Alþingi samþykkt að Landmælingar Íslands og Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn yrðu hluti af Náttúrufræðistofnun Íslands, sem við breytingarnar fékk heitið Náttúrufræðistofnun og tók ný sameinuð stofnun til starfa 1. júlí sl.
Öflugri og hagkvæmari einingar
„Við höfum lagt á það áherslu að færa störfin nær viðfangsefnum stofnana ráðuneytisins. Við erum þegar búin að færa aðsetur Vatnajökulsþjóðgarðs heim á Hornafjörð og með þessum breytingum stígum við enn stærri skref,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
„Nýjar stofnanir verða öflugri og hagkvæmari einingar sem verða betur í stakk búnar að sinni skyldum sínum gagnvart náttúrunni og fólkinu sem þær þjónusta. Starfstöðvarnar eru þegar víða um land og því góður bragur á því að aðsetur þeirra verði utan höfuðborgarsvæðisins. Það er vert að nefna að fólki verður ekki gert að færa sig frá sínum starfstöðvum. Það er langtíma verkefni að færa störf út á land og þetta er enn eitt skrefið í þeirri vegferð,” bætir Guðlaugur við.