Klukkan 1:55 aðfaranótt miðvikudags varð jarðskjálfti af stærð 2,6 við Grænhól í Ölfusi, um 5 km frá Hveragerði.
Veðurstofan fékk tilkynningar um að skjálftinn hefði fundist í Hveragerði og á Selfossi.
Nokkur skjálftavirkni hefur verið á svæðinu undanfarna viku en í síðustu viku mældust 55 skjálftar á svæðinu, sá stærsti var 3,9 eftir hádegi þann 10. janúar síðastliðinn.