Áfrýjun umhverfisráðherra verði dregin til baka

Samtök atvinnulífsins krefjast þess að forsætisráðherra beiti sér fyrir því að áfrýjun umhverfisráðherra á dómi Héraðsdóms Reykjavíkur um ógildingu á synjun ráðherrans á aðalskipulagi Flóahrepps verði dregin til baka.

Í bréfi SA til forsætisráðherra er sagt að framferði ráðherrans gangi þvert á yfirlýsingar forsvarsmanna ríkisstjórnarinnar til aðila vinnumarkaðarins um framkvæmdir og uppbyggingu og hefur enga aðra efnislega þýðingu aðra en þá að tefja framkvæmdir um nokkra mánuði og auka tilkostnað forsætisráðuneytisins.

SA álíta að umhverfisráðherra hafi með framferði sínu í þessu máli sýnt óbilgirni og þjónkun við þrönga pólitíska hagsmuni og þar með stórskaðað endurreisn íslensks atvinnulífs. Slíkt framferði gengur þvert á öll loforð forsvarsmanna ríkisstjórnarinnar og hlýtur forsætisráðherra að velta fyrir sér stöðu ráðherra sem þannig haga sér.

Samtök atvinnulífsins hafa í dag sent forsætisráðherra bréf þar sem þess er óskað að ríkislögmaður dragi til baka áfrýjun málsins til Hæstaréttar.

Bréf SA til forsætisráðherra má lesa hér

Fyrri greinStefán Péturss: Mikil gróska í taekwondo
Næsta greinByrjað að moka fyrir velli