Álagning á fasteignir lækkar í Rangárþingi eystra

Hvolsvöllur. Ljósmynd/Mats Wibe Lund

Rangárþing eystra hefur nú birt álagningu fasteignagjalda en á fundi sveitarstjórnar í desember síðastliðnum var ákveðið að álagningaprósentan yrði lækkuð til að koma til móts við hækkun fasteignamats.

Fasteignaverð í sveitarfélaginu hefur hækkað mikið á síðustu árum og hefur sú hækkun bein áhrif á fasteignamat í sveitarfélaginu. Fasteignamat í Rangárþingi eystra hækkaði að meðaltali um 12,5% milli ára en það er ögn minni hækkun en meðalhækkun fasteignamats á Suðurlandi sem var 13,1%.

Til að koma til móts við fasteignaeigendur í Rangárþingi eystra ákvað sveitastjórn að lækka álagningaprósentu fasteignagjalda úr 0,375% í 0,35%. Með þessari aðgerð tekur sveitasjóður á sig um helming hækkunarinnar.

Fyrri greinTinna nýr formaður KFR
Næsta greinSanngjörn dreifing skattbyrðar