Eyþór H. Ólafsson, forseti bæjarstjórnar skipar 1. sæti D-listans í Hveragerði fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar og Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstjóri er í „baráttusætinu“, 4. sæti.
Tillaga uppstillingarnefndar að framboðslista D-listans var samþykkt samhljóða á fjölmennum félagsfundi Sjálfstæðisfélagsins í Hveragerði í kvöld. Allir núverandi bæjarfulltrúar D-listans eru á listanum fyrir utan Unni Þormóðsdóttur, sem gaf ekki kost á sér. Á listanum eru kynjahlutföll jöfn, eða sjö konur og sjö karlar.
D-listinn hlaut 56% atkvæða í síðustu sveitarstjórnarkosningum og fékk hreinan meirihluta þriðja kjörtímabilið í röð, frá árinu 2006 þegar Aldís tók við sem bæjarstjóri.
D-listi Sjálfstæðisfélags Hveragerðis:
1. Eyþór H. Ólafsson – 58 ára – Verkfræðingur og forseti bæjarstjórnar
2. Bryndís Eir Þorsteinsdóttir – 39 ára – Verslunarstjóri og blómaskreytir
3. Friðrik Sigurbjörnsson – 29 ára – Viðskiptastjóri og bæjarfulltrúi
4. Aldís Hafsteinsdóttir – 53 ára – Bæjarstjóri
5. Alda Pálsdóttir – 44 ára – Verkefnastjóri hjá Grund Mörkin
6. Sigurður Einar Guðjónsson – 44 ára – Verkefnastjóri hjá Landsvirkjun
7. Jakob Fannar Hansen – 27 ára – Flugmaður
8. Ingibjörg Zoëga – 46 ára – Húsmóðir
9. Davíð Ernir Kolbeins – 20 ára – Starfsmaður í Borgarleikhúsinu
10. Thelma Rós Kristinsdóttir – 36 ára – Skrifstofustjóri Fagvís
11. Sigurður Páll Ásgeirsson – 21 árs – Starfsmaður í ferðaþjónustu
12. Elín Káradóttir – 27 ára – Stjórnmálafræðingur og meðeigandi Byr fasteignasölu
13. Sæunn Freydís Grímsdóttir – 69 ára – Myndlistarmaður
14. Helgi Þorsteinsson – 69 ára – Múrarameistari og kirkjuvörður