Alelda bifreið í Mýrdalnum

Ljósmynd/Lögreglan

Lögregla og slökkvilið fengu tilkynningu laust fyrir klukkan 3:00 í nótt um eld í fólksbifreið á þjóðvegi 1 skammt austan við Vík í Mýrdal.

Bifreiðin varð fljótt alelda og er hún gjörónýt.

Tveir voru í bifreiðinni er eldurinn kom upp, ökumaður og farþegi og sluppu þeir báðir ómeiddir.

Fyrri greinGuðmundur skoraði eftir sjö ára hlé
Næsta greinÓkeypis gæði – Hugarflug Leikfélags Selfoss