Álfheiður Eymarsdóttir, stjórnmálafræðingur á Selfossi, sigraði í prófkjöri Pírata í Suðurkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar.
Prófkjörinu lauk kl. 16 í dag og voru úrslitin birt rúmum tuttugu mínútum síðar.
Álfheiður hefur verið varaþingmaður Pírata á yfirstandandi kjörtímabili, en Smári McCarthy núverandi oddviti Pírata í Suðurkjördæmi gaf ekki kost á sér í prófkjörinu.
Önnur í prófkjörinu varð Lind Völundardóttir, framhaldsskólakennari á Höfn í Hornafirði. Þar á eftir komu Hrafnkell Brimar Hallmundsson í 3. sæti, Eyþór Máni Steinþórsson í 4. sæti og Guðmundur Arnar Guðmundsson í 5. sæti.