Almar Sigurðsson á Lambastöðum í Flóahreppi hefur ákveðið að taka þátt í forvali Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Suðurkjördæmi, fyrir næstu Alþingiskosningar og sækist eftir að skipa 1. sæti listans.
Almar hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir VG undangengin ár, verið formaður Svæðisfélags VG í Árnessýslu, í stjórn kjördæmisráðs og sinnt formennsku í uppstillinganefndum, bæði til þings- og sveitarstjórnakosninga.
„Ég vil hafa áhrif á samfélagið og býð fram krafta mína. Ég bý á Lambastöðum í Flóahreppi en er fæddur og uppalinn á Selfossi. Ég hef því sterkar taugar til Suðurlands og vil láta gott af mér leiða. Ég hef fjölbreytta reynslu úr atvinnulífinu, bæði sem launþegi og atvinnurekandi, en nú rek ég ásamt konu minni Gistiheimilið á Lambastöðum,“ segir Almar.
„Náttúruvernd er mitt hjartans mál og ég styð frumvarp um þjóðgarð á hálendinu. Það eru náttúruperlur víða á Suðurlandi sem þarf að verja fyrir stórframkvæmdum, Eldvörpin á Reykjanesi, Þjórsáin, Mýrdalurinn norðan Dyrhólaós og Fjallabakssvæðið, svo eitthvað sé nefnt. Ég hef tekið virkan þátt í baráttu gegn áformum um virkjanir í neðrihluta Þjórsá. Ennþá er ekki búið að raska náttúrunni og lífríkinu þar og enn getum við unnið þann slag,“ segir Almar ennfremur og bætir við að hann vilji leggja sitt af mörkum til að styrkja og endurreisa atvinnulífið á Suðurlandi.
„Margir hafa orðið fyrir þungu höggi í okkar kjördæmi að undanförnu og verkefnið hlýtur að vera að endurheimta störfin. Ferðaþjónustan skipar stórt hlutverk í endurreisninni. Landbúnaður er mikilvæg stoð í atvinnulífinu og eru aðstæður á Suðurlandi ákjósanlegar til matvælaframleiðslu og mikilvægt að standa vörð um þá atvinnugrein. Það er mín skoðun að við eigum að byggja afkomu okkar á litlum og meðalstórum fjölskyldufyrirtækjum, það þýðir dreifða eignaraðild og blómlega búsetu og atvinnu um allt kjördæmið,“ segir Almar að lokum.