Lögregla og viðbragðsaðilar eru nú við vinnu á vettvangi alvarlegs bifhjólaslyss skammt vestan Stigár í Öræfum.
Slysið var tilkynnt til neyðarlínu kl. 13:36 í dag. Stigá er skammt austan við Hnappavelli, nokkurn veginn miðja vegu milli Kirkjubæjarklausturs og Hornafjarðar.
Umferð er stýrt framhjá vettvangi og má búast við töfum þar á meðan á vinnu stendur.
Lögreglan á Suðurlandi getur ekki veitt frekari upplýsingar um máli að svo stöddu.