Alvarlegt slys á Suðurstrandarvegi

Mynd úr safni. sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Viðbragðsaðilar eru nú við vinnu á vettvangi umferðarslyss á Suðurstrandarvegi skammt vestan Herdísarvíkur en þar fór bíll út af vegi og valt. Tilkynning um slysið barst kl. 7:45.

Ökumaðurinn var einn í bílnum og kastaðist hann út úr honum. Verið er að flytja hann með þyrlu á sjúkrahús í Reykjavík.

Viðbragðsaðilar frá Suðurnesjum og Suðurlandi eru á vettvangi og má búast við því að einhverjar umferðartafir verði á vettvangi vegna umferðar viðbragðsaðila.

Fyrri greinSelfyssingar áfram í bikarnum eftir spennuleik
Næsta greinÚrskurðaður í gæsluvarðhald vegna líkamsárásar