Alvarlegt umferðarslys varð á Landeyjavegi við bæinn Strönd í Vestur-Landeyjum á fimmta tímanum í dag þegar fólksbíll fór útaf veginum og valt.
Ökumaðurinn var einn í bílnum.
Lögreglan er enn að vinna á vettvangi og ekki fást nánari upplýsingar um slysið að svo stöddu.