Anna Erla Valdimarsdóttir hefur verið ráðin leikskólastjóri Leikskólans Undralands í Hveragerði í veikindafjarveru Sesselju Ólafsdóttur, leikskólastjóra.
Anna Erla tók við starfinu þann 1. febrúar sl.
Hún er leikskólakennari að mennt hefur starfað á Undralandi um árabil. Fyrst sem leiðbeinandi en að lokinni útskrift árið 1998 hefur hún starfað þar sem deildarstjóri og nú síðast sem aðstoðarleikskólastjóri í afleysingu.
Anna Erla hefur sótt fjölda námskeiða tengd starfinu og er því vel búin undir nýjan starfsvettvang.