Annir hjá björgunarsveitum í dag

Björgunarsveitir á Fimmvörðuhálsi. Mynd úr safni. Ljósmynd/Rúnar Steinn Gunnarsson

Nokkrar annir hafa verið hjá björgunarsveitum á Hellu, Hvolsvelli og undir Eyjafjöllum í dag.

Í morgun leituðu þær og fundu erlendan göngumann sem var í hrakningum á Fimmvörðuhálsi. Sá var kaldur og hrakinn eftir vinda- og rigningarsama nótt. Fannst hann nokkuð fljótt og fékk aðhlynningu hjá björgunarfólki.

Nú eftir hádegið voru björgunarsveitirnar aftur kallaðar út vegna ferðamanna sem nú voru fastir í Krossá. Með liðsinni öflugs traktors Ferðafélagsins í Þórsmörk tókst að bjarga þeim í land áður en illa fór.

Vert er að ítreka að ár á Suðurlandi og hálendi hafa vaxið mikið síðustu daga.

Fyrri greinEiningarverksmiðjan flytur starfsemi sína í Ölfus
Næsta greinHulda Dís í Val