Sveitarfélagið Árborg og Byggðasafn Árnesinga hafa skrifað undir áframhaldandi samning um rekstur Sjóminjasafnsins á Eyrarbakka.
Samningurinn felur í sér að Byggðasafn Árnesinga tekur að sér að sjá um daglegan rekstur Sjóminjasafnsins á Eyrarbakka og hafa umsjón með miðlun í Þuríðarbúð á Stokkseyri. Framlag til rekstursins er greitt mánaðarlega í samræmi við samþykkta fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar. Um er að ræða endurnýjun á þjónustusamningi sem gerður var árið 2001.
Sjóminjasafnið er staðsett rétt við Húsið á Eyrarbakka og er alla jafna opið í samræmi við opnunartíma Byggðasafns Árnesinga. Safnið hýsir m.a. áraskipið Farsæl sem er tólfróinn teinæringur smíðaður á Eyrarbakka árið 1915, hafði allt að 14 manna áhöfn og gat borið 10 tonn eða 1.000 fiska.
Í safneign Sjóminjasafnsins eru um 800 safnmunir og um 6.000 ljósmyndir. Safnið á einnig Beitningaskúrinn, sem byggður var 1925 á blómaskeiði vélbátaútgerðar á Eyrarbakka.