Lið Árborgar er úr leik eftir stórt tap gegn Grindavík í Útsvarsþætti Ríkissjónvarpsins í kvöld.
Lokatölur voru 60-108 og er þátttöku Árborgar þar með lokið í Útsvarinu í vetur.
Lið Árborgar skipuðu Páll Óli Ólason, Þorsteinn Tryggvi Másson og Hanna Lára Gunnarsdóttir.