Sveitarfélagið Árborg samþykkti nú í sumar styrk til Valgeirs Guðjónssonar, tónlistarmanns á Eyrarbakka, þess efnis að vinna lag í tilefni af 20 ára afmæli Sveitarfélagsins Árborgar.
Nú er lagið að líta dagsins ljós og verður það frumflutt á morgun, laugardaginn 11. ágúst kl. 21:30 í Sigtúnsgarðinum á undan Sléttusöngnum á Sumar á Selfossi.
Flytjendur lagsins eru þau Valgeir Guðjónsson, Vigdís Vala Valgeirsdóttir og Gísli Ragnar Kristjánsson. Auk þeirra spila undir þeir Pétur Valgarð Pétursson gítar, Tómas Jónsson píanó og Jóhann Ásmundsson bassi og trommur. Upptaka og frágangur fór fram í Stúdíó Paradís.
Hér að neðan má sjá texta lagsins og geta íbúar haft hann með sér á laugardaginn og tekið undir með Valgeiri og félögum þegar lagið verður flutt opinberlega í fyrsta skipti.
„Borgin við ána“
Áin hvíta leitar lengi að ósi
líkt og myrkið skimar eftir ljósi
hún þræðir farveg þekkir klungur kletta
og krika þar sem sumarblómin spretta
Undir fjalli Ingólfs blanda blóði
og bindast á og sog í sama flóði
jökullindavatnið lengra leitar
og lítur borg á mörkum ár og sveitar
Borgin við ána árborgin sæla
erindið við þig er lof þér að mæla
frá ströndu til hlíða og fríðan um flóann
er fjölskrúðugt mannlíf – svo tjáir mér lóan
Áin streymir úthaf hennar bíður
yfir himinboginn hvelfist víður
eins og forðum bylgjur brotna á sandi
og blessun góðra vætta lýsir landi
Borgin við ána árborgin sæla
erindið við þig er lof þér að mæla
megum við blómstra í súru og sætu
í suðvestan, norðaustan sólskini og vætu.