Árni Eiríksson, oddviti og verkefnisstjóri á Skúfslæk, skipar 1. sæti Flóalistans í Flóahreppi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.
Í 2. sæti er Hrafnkell Guðnason, verkefnisstjóri í Glóru, og í 3. sæti er Margrét Jónsdóttir, varaoddviti og bóndi á Syðra-Velli. Árni og Margrét sitja nú í hreppsnefnd fyrir hönd Flóalistans, ásamt Sigurbáru Rúnarsdóttur, sem gaf ekki kost á sér á listann að þessu sinni.
Flóalistinn bauð fyrst fram fyrir síðustu sveitarstjórnarkosningar og fékk þá 64,9% atkvæða og þrjá af fimm hreppsnefndarmönnum.
Frambjóðendur Flóalistans eru:
- Árni Eiríksson, oddity og verkefnisstjóri hjá Landgræðslu ríkisins
- Hrafnkell Guðnason, verkefnastjóri hjá Háskólafélagi Suðurlands
- Margrét Jónsdóttir, bóndi á Syðra-Velli
- Stefán Geirsson, bóndi í Gerðum
- Hulda Kristjánsdóttir, rekstrarstjóri Lava – eldfjalla- og jarðskjálftamiðstöðvar
- Walter Fannar Kristjánsson, dreifingarstjóri hjá Kjörís
- Hallfríður Ósk Aðalsteinsdóttir, umsjónarkennari í Flóaskóla
- Helgi Sigurðsson, verktaki og bóndi í Súluholti
- Ingunn Jónsdóttir, verkefnastjóri hjá Háskólafélagi Suðurlands
- Bjarni Stefánsson, bóndi í Túni