Á aðalfundi stéttarfélagsins FOSS, sem haldin var á Hótel Selfossi þann 23. september síðastliðinn, var Árný Erla Bjarnadóttir kosin nýr formaður.
Árný Erla hefur starfað á skrifstofu FOSS frá árinu 2012.
Ásbjörn Sigurðsson hætti sem formaður eftir 11 ár í starfi. Auk þess hætti Þuríður Jónsdóttir sem stjórnarmaður en hún hefur unnið fyrir félagið í um það bil 20 ár. Þeim voru þökkuð góð störf á aðalfundinum.
Á fundinum voru einnig Ágústa G. Sigurbjörnsdóttir og Helga Kolbeinsdóttir kosnar í stjórn félagsins.