Lögreglan á Suðurlandi kærði átján ökumenn fyrir að aka of hratt í liðinni viku. Tíu þeirra voru stöðvaðir af lögreglumönnum í Vík og á Kirkjubæjarklaustri.
Þeir sem hraðast óku í V-Skaftafellssýslu voru á 138 og 140 km/klst hraða á 90 km/klst vegi.
Þrír af þessum átján lentu í radar lögreglunnar innan þéttbýlis, þar sem lægri hámarkshraði er.