Embætti sóknarprests í Hrunaprestakalli hefur verið auglýst laust til umsóknar en sr. Eiríkur Jóhannsson í Hruna hefur verið skipaður í embætti prests í Háteigsprestakalli í Reykjavík frá 1. september næstkomandi.
Umsóknarfrestur um embætti sóknarprests í Hruna rennur út þann 5. ágúst næstkomandi en skipað er í embættið frá 1. september, til fimm ára.
Í Hrunaprestakalli eru fjórar sóknir; Hrepphólasókn, Hrunasókn, Ólafsvallasóknog Stóra-Núpssókn. Íbúar í prestakallinu eru rúmlega tólfhundruð.
Valnefnd velur sóknarprest samkvæmt starfsreglum um val og veitingu prestsembætta en óski minnst þriðjungur atkvæðisbærra sóknarbarna í prestakallinu eftir því að almenn prestskosning fari fram er skylt að verða við því.