Sveitarfélagið Árborg hefur auglýst lausar til umsóknar tvær skólastjórastöður í nýjum skólum á Selfossi.
Annars vegar vegar vantar skólastjóra við leikskólann Goðheima við Engjaland sem áætlað er að opna í mars 2021 og hins vegar nýjan grunnskóla í Björkurstykki sem opnar haustið 2021.
Ráðið verður í bæði störfin frá og með 1. janúar 2021 en skólastjórarnir munu koma að allri undirbúningsvinnu og faglegu samstarfi í tengslum við opnun skólanna.
Umsóknarfrestur er til 13. september 2020.