Ríkisstjórnin samþykki á fundi sínum í dag 139 milljóna króna aukafjárframlög vegna brýnna verkefna á gossvæðum á Suðurlandi í kjölfar eldgosa 2010 og 2011.
Ríkisstjórnin hefur með samþykkt þessari lagt til viðbótarfjárveitingar sem nema rúmlega 1,4 milljarði króna frá því að eldgosa- og hamfarahrinan hófst í maí árið 2010. Í þeirri fjárhæð er ekki meðtalinn margvíslegur kostnaður stofnana sem fjármagnaður hefur verið af árlegum fjárheimildum þeirra.
Viðbótarframlagið er samþykkt að tillögu samráðshóps ráðuneytisstjóra um viðbrögð við náttúruhamförum, en með hópnum starfa fulltrúar frá forsætisráðuneyti, fjármálaráðuneyti og almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra. Samráðshópurinn fór í vettvangsferð á gossvæðin á Suðurlandi 8. – 9. maí sl. og voru landgræðslustjóri og vegamálastjóri með í för.
Þörf er talin á að fjármagna og styrkja nokkur brýn verkefni til endurreisnar og viðbragða á svæðinu, einkum við gerð og styrkingu varnargarða vegna flóðahættu, uppgræðslu og verkefni til að hefta öskufok, en það er talið slæmt í Fljótshverfi í Skaftárhreppi.
Viðbótarframlagið, skiptist í þrennt:
Landgræðsla ríkisins fær 54 milljónir króna vegna verkefna á gossvæðunum á þessu ári. Gert er ráð fyrir að stofnunin brúi til viðbótar 20 milljóna króna kostnað af sínum fjárheimildum.
Vegagerð ríkisins fær 75 milljón króna aukafjárframlag til fyrirbyggjandi aðgerða við varnargarða en það nemur um þremur fjórðu hlutum af áætluðum kostnaði við verkefnið á þessu ári.
Skaftárhreppur fær 10 milljón króna styrk á þessu ári til að takast á við óvænt útgjöld sveitarfélagsins og verkefni í kjölfar Grímsvatnagossins. Ríkisstjórnin samþykkti í upphafi óskipta fjárheimild til slíks stuðnings.
Samtals eru aukafjárframlög því 139 milljónir króna af fjárheimildum þessa árs.