Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ferðamálaráðherra og Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra gerðu samspil atvinnulífs og menntamála að umfjöllunarefni á viðburði sem fram fór í gær á Grand hóteli Reykjavík.
Það voru Hæfnisetur ferðaþjónustunnar og SAF sem boðuðu til viðburðarins til að kynna framtak ferðaþjónustunnar sem miðar að aukinni fræðslu til erlends starfsfólks um íslenskt mál.
Ferðaþjónustan og Hæfnisetur ferðaþjónustunnar kynntu í gær fagorðalista ferðaþjónustunnar. Með fagorðalistanum má efla skýr samskipti og íslenskukunnáttu á vinnustöðum ferðaþjónustunnar og bæta þar með þjónustu og efla veg íslenskunnar. Fagorðalistinn inniheldur lykilorð og hugtök sem notuð eru í ferðaþjónustu á íslensku, ensku og pólsku – og er hann tiltækur bæði sem veggspjöld og í ítarlegri útgáfum á vefnum.
Í ræðu sinni sagði Þórdís Kolbrún gott starfsfólk vera lykilatriði fyrir rekstur ferðaþjónustufyrirtækja og góða upplifun ferðamanna.
„Orðalykillinn er mikilvægt tæki til að efla samskipti starfsfólks og því samhliða að auka ánægju þess og hæfni – og þar með gæði íslenskrar ferðaþjónustu.“
Mennta- og menningarmálaráðherra hefur lagt fyrir Alþingi þingsályktunartillögu um að efla íslensku sem opinbert mál á Íslandi með það að markmiði að tryggja að íslenska verði áfram notuð á öllum sviðum íslensks samfélags. Í ræðu sinni sagðist ráðherra fagna því frumkvæði sem ferðaþjónustan sýndi með því að bjóða íslenskufræðslu með þessum hætti.
„Við viljum snúa vörn í sókn fyrir íslenskuna og þetta er lofsvert framtak sem ég tel að muni bæta þjónustu og stuðla að betri samskiptum.“