Á laugardaginn, þann 8. júní, mun Bændamarkaðurinn á Efra-Seli í Hrunamannahreppi hefja starfsemi sína.
Segja má að hann komi í stað markaðarins sem staðsettur var á Flúðum um árabil og naut mikilla vinsælda.
Bændamarkaðurinn á Efra-Seli verður rekinn með svipuðu sniði og á Flúðum þar sem mikil áhersla er lögð á fjölbreyttar landbúnaðarafurðir sem framleiddar eru á Suðurlandi og þá einkum í uppsveitum Árnessýslu. Á markaðinum verður að finna kjötvörur, grænmeti, fisk, kryddjurtir, heimabakað bakkesli og fleira. Handverk frá sunnlensku handverksfólki verður einnig til sölu á markaðinum.
„Beint frá býli“ hefur notið sífellt meiri vinsælda þar sem fólk getur keypt gæðavöru beint af bónda. Bændamarkaðurinn er beinn tengiliður á milli viðskiptavina og bænda sem tryggir að matvara er ávallt fersk og af réttum gæðum. Það að matvaran er framleidd í smáum stíl en ekki fjöldaframleidd tryggir það. Grænmetisbændur í nágrenninu munu sjá til þess að ávallt sé til ferskt grænmeti og mun úrvalið aukast þegar líður á sumarið.
Opið er mánudaga – föstudaga frá 13.00 til 18.00. Laugardaga og sunnudaga er opið 11.00 til 18.00 í sumar.