Bæjarráð Árborgar leggst gegn frumvarpi um hálendisþjóðgarð

Ráðhús Árborgar. sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Bæjarráð Árborgar leggst gegn fyrirliggjandi frumvarpi um hálendisþjóðgarð og telur að frumvarpið sé ekki tilbúið til afgreiðslu eins og það liggur fyrir nú.

Málið var rætt á fundi bæjarráðs í gær og segir ráðið að hér sé um að ræða stórt og viðamikið mál sem þarfnast mun meira samráðs svo tímabært sé að taka ákvörðun um stofnun þjóðgarðs á hálendinu.

„Bæjarráð telur ekki ásættanlegt að skipulagsvald sveitarfélaga skerðist, enda eitt öflugasta verkfæri sveitarfélaga og íbúa þeirra til þess að hafa áhrif á þróun byggðar og landnotkun. Með tilliti til aðkomu sveitarfélaganna að málefnum miðhálendisins, þekkingar þeirra og nálægðar, þjónar það ekki hagsmunum sveitarfélaganna að fella 30-40% af landinu öllu undir miðstýringarvald ríkisins,“ segir í bókun bæjarráð.

„Bæjarráð óttast að verði frumvarpið að lögum muni skipulagsvaldið í raun flytjast yfir til stjórnar Þjóðgarðsstofnunar, sem þá kemur til með að stýra og fjalla um þætti eins og landnýtingu og mannvirkjagerð, auk annarra innviða, án aðkomu sveitarfélaga. Ennfremur telur bæjarráð að heppilegra hefði verið að stofna til samtals við einstök sveitarfélög varðandi frekari þörf á vernd hálendisins. Ef sú leið hefði verið valin væri auðveldara að meta kosti og galla einstakra friðlýsingarmöguleika eða útfærslur þjóðgarðs á hluta umrædds svæðis,“ segir ennfremur í bókun bæjarráðs sem telur einnig mikla óvissu ríkja um fjármögnun verkefnisins og því sé raunveruleg hætta á að ekki takist að byggja upp innviði þjóðgarðsins svo sómi sé að.

Fyrri greinNafnasamkeppni vegna nýs hringtorgs
Næsta greinNýung á heimsvísu prófuð í Hveragerði