Banaslys varð á Biskupstungnabraut undir Ingólfsfjalli, á milli Tannastaða og Alviðru, um klukkan hálfníu í gærkvöld.
Ökumaður fólksbíls virðist hafa misst stjórn á bifreiðinni í glerhálku en bíllinn fór útaf veginum austan megin og valt nokkrar veltur.
Tveir farþeganna köstuðust út úr bifreiðinni og var sá er lést annar þeirra. Hann var á þrítugsaldri, rúmenskur en búsettur hér á landi.
Hann lenti undir bílnum og var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á sjúkrahús í Reykjavík þar sem hann var úrskurðaður látinn.
Sex voru í bílnum en fjórir slösuðust minniháttar og voru fluttir á slysadeild á Selfossi. Tveir slösuðust alvarlega og voru þeir fluttir til Reykjavíkur. Hinn maðurinn var fluttur með sjúkrabíl og mun hann ekki vera í lífshættu. Fólkið er frá Rúmeníu, Tékklandi og Íslandi.
Lögreglan vinnur að rannsókn slyssins, skýrslutökum af ökumanni og farþegum auk rannsóknar á ökutækinu sjálfu.
UPPFÆRT KL. 10:30