Rúmlega sextugur karlmaður frá Taiwan, ferðamaður á Íslandi, lést þegar hann missti stjórn á vélsleða sem hann ók á Langjökli um hádegisbil í dag.
Slysið var tilkynnt lögreglu kl. 12:23 og var maðurinn úrskurðaður látinn af lækni í áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar þegar hún lenti á vettvangi um klukkutíma síðar. Eiginkona mannsins var farþegi á sleðanum og slasaðist hún einnig en meiðsl hennar eru ekki talin alvarleg.
Tildrög slyssins eru í rannsókn hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Selfossi og eru lögreglumenn þaðan ennþá á vettvangi. Sleðinn verður fluttur í bíltæknirannsóknarsetur lögreglunnar á Selfossi til rannsóknar.