Banaslys á Sólheimasandi

Lögreglunni á Suðurlandi barst tilkynning klukkan 22:55 í gærkvöld um alvarlegt umferðarslys á Suðurlandsvegi á Sólheimasandi skammt vestan við Pétursey.

Erlendur karlmaður lést er hann varð fyrir bifreið sem ekið var vestur Suðurlandsveg. Ökumaður bifreiðarinnar var erlendur ferðamaður.

Sá látni var í tíu manna hóp á tveimur bifreiðum. Bifreiðarnar höfðu verið stöðvaðar í vegkantinum og fólkið fór út úr þeim. Ekki liggur fyrir með hvaða hætti slysið bar að en lögreglan á Suðurlandi rannsakar slysið og aðdraganda þess.

Fulltrúi rannsóknarnefndar samgönguslysa kom á staðin en þjóðveginum var lokað í um þrjár klukkustundir á meðan vettvangsrannsókn fór fram.

Fyrri greinNaumt tap á Nesinu
Næsta greinEinkaviðtal: Viðar Örn á ströndinni – „Ísraelinn er nettur gaur“