Alvarlegt vinnuslys varð síðastliðinn föstudag á sveitabýli í Ásahreppi. Maður klemmdist þar sem verið var að vinna við dráttarvél og lést hann af sárum sínum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.
Ekki er unnt að greina frekar frá tildrögum slyssins að svo stöddu. Rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi fer með rannsókn málsins.