Kona sem flutt var slösuð á sjúkrahús í Reykjavík í gær vegna höfuðáverka sem hún hlaut eftir fall á göngustíg við Reynisfjöru er látin.
Hún var erlendur ferðamaður, fædd 1938, á ferð um Ísland með fjölskyldu sinni.
Tilkynning barst neyðarlínu um kl. 14:30 í gær og voru viðbragðsaðilar á Suðurlandi þegar kallaðir til.
Konan var flutt til móts við þyrlu Landhelgisgæslunnar með sjúkrabifreið og svo áfram með þyrlunni til Reykjavíkur.