Erlendur ferðamaður lést í bílveltu á Suðurlandsvegi, vestan við Kirkjubæjarklaustur, á tíunda tímanum í morgun.
Tveir erlendir ferðamenn voru í bílnum virðist sem svo að ökumaðurinn hafi misst stjórn á honum í slæmri færð með þeim afleiðingum að hann valt út fyrir veg.
Annar aðilanna sem í bílnum voru var úrskurðaður látinn á vettvangi, en hinn er lítils háttar slasaður.
Lögregla er að vinna á vettvangi og er rannsókn málsins á frumstigi.