Banaslys varð í dag, þegar karlmaður á fertugsaldri féll í Tungufljót nálægt Geysi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.
Straumvatnsbjörgunarmenn náðu manninum upp úr ánni og voru strax hafnar endurlífgunartilraunir á honum, sem báru ekki árangur.
Aðstæður á vettvangi voru krefjandi, rigning og mikið vatnsmagn í ánni.
Tildrög slyssins eru til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurlandi.