Báran og Drífandi stéttarfélög mótmæla fyrirhuguðum uppsögnum á ræstingafólki hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
Í áskorun frá stéttarfélögunum segir að áunnin réttindi og kjör starfsmannanna munu rýrna til muna og skapi þeim enn meiri óvissu um framtíðina en er nú þegar í þjóðfélaginu.
„Starfsmennirnir hafa undanfarnar vikur verið í framlínu þeirra sem barist hafa við farsóttina á heilbrigðisstofnunum víða um landið. Störf allra starfsmanna á HSU hefur skilað þeim árangri að ekkert smit hefur greinst á stofnuninni og á ræstingafólkið stóran þátt í þeim árangri,“ segir í áskorun stéttarfélaganna.
„Þetta eru því kaldar kveðjur frá yfirstjórn stofnunarinnar, nú er sér fyrir endann á þessum kafla farsóttarinnar. Því miður virðast gömul sannindi vera að raungerast enn og aftur með því að segja upp þeim sem lægst hafa launin ef spara þarf pening, en hlífa þeim sem hæstu launin hafa.“
Stéttarfélögin skora á stjórn stofnunarinnar að finna aðrar leiðir til hagræðingar og hætta við fyrirhugaðar uppsagnir.