Síðastliðinn föstudaginn varð barn undir afturdekki pallbíls sem ekið var afturábak á bílastæði við sveitabæ í Árnessýslu.
Í dagbók lögreglunnar á Suðurlandi kemur fram að barnið var flutt á sjúkrahús í Reykjavík en áverkar þess reyndust minniháttar og fékk það að fara heim að skoðun lokinni.