Bátaflokkar kallaðir til öryggisleitar í Þorlákshöfn

Mynd úr safni. Ljósmynd/Björgunarfélag Árborgar

Lögreglan á Suðurlandi hefur óskað eftir því við svæðisstjórn börgunarsveita í Árnessýslu að kallaður verði bátaflokkur til öryggisleitar í og við Skötubót í Þorlákshöfn.

Þar fannst sjóblautur fatnaður, stuttbuxur, skór og sokkar, í fjörunni við svokallað áburðarplan við varnargarðinn við Skötubót.

Ekki er vitað til þess að neins sé saknað en rétt þykir að bregðast strax við og kanna málið vel.

Ef einhver kann skýringar á tilvist þessa fatnaðar á þessum stað er sá hinn sami beðinn að hafa samband við lögreglu í síma 444-2000 eða í 112.

Fyrri greinStuðningsmenn styrktu Þórsara um 815 þúsund
Næsta greinLeit lokið í Þorlákshöfn