Leikskólinn Bergheimar í Þorlákshöfn verður lokaður mánudaginn 13. desember og þriðjudaginn 14. desember vegna COVID-19 smita en búið er að staðfesta tvö smit á einni deild leikskólans.
Hafnarfréttir greina frá þessu.
Öll börn og starfsfólk á þeirri deild sem um ræðir hafa verið sett í sóttkví og var ákvörðun um lokun skólans tekin eftir ráðleggingu frá rakningarteyminu.