Best að Suðurlandsvegur sé 2+2 vegur

Bæjarráð Hveragerðisbæjar fagnar því að undirbúningur að breikkun Suðurlandsvegar milli Hveragerðis og Selfoss skuli vera hafinn en nýlega voru opnuð tilboð í for- og verkhönnun vegarins.

Þar er um að ræða áfanga er nær frá Kambarótum við Hveragerði að vegamótum hringvegar og Biskupstungnabrautar við Selfoss, eða um 12 kílómetra.

„Þessi vegarkafli er einn sá hættulegasti í þjóðvegakerfi landsins og því afar mikilvægt að sem allra fyrst verði ráðist í breikkun hans og þar með ásættanlega flutningsgetu og öruggan aðskilnað á akstursstefnum, því markmiði er best náð með 2+2 vegi. Væntanlega mun liggja fyrir hvernig verkinu verður háttað um leið og hönnunarferlið fer í gang,“ segir í bókun bæjarráðs.

„Bæjarráði Hveragerðisbæjar þykir þó ljóst að fjármunum er alltof naumt skammtað til vegamála. Brýna nauðsyn ber til að samræmis sé gætt á milli samþykktrar samgönguáætlunar og þess fjármagns sem áætlað er til málaflokksins á hverjum tíma. Sé slíkt ekki tryggt er ljóst að vegakerfi landsins mun ekki til framtíðar bera þá miklu umferð og aukna álag sem á því er, með því miður hörmulegum afleiðingum,“ segir ennfremur í bókuninni.

Fyrri grein„Óásættanlegt að tugum starfa sé ógnað í ónauðsynlegum aðgerðum“
Næsta greinBrynja sækir um styrki vegna íbúðakaupa