Í algert óefni er komið vegna skorts á bílastæðum við Þingvelli. Í fyrra heimsóttu 500.000 ferðamenn þjóðgarðinn og talið er að um 1 milljón hafi farið í gegn um svæðið.
Ólafur Örn Haraldsson þjóðgarðsvörður á Þingvöllum segir í samtali við mbl.is að úrbætur á bílastæðamálum séu eitt brýnasta verkefnið sem ráðast þurfi í á Þingvöllum. Öll skipulagsvinna vegna bílastæða, við Hakið svokallaða þar sem fræðslumiðstöð er fyrir ofan Almannagjá, hefur þegar verið unnin og Ólafur segir að 45 milljónir þurfi til að bæta úr aðstöðunni.
Allt upp í 25 rútur eru á bílastæðinu þegar mesta örtröðin er en einungis eru 16 merkt bílastæði fyrir fólksbíla við Hakið og því grípur fólk til þess að leggja úti í kanti. Þá eru bílastæðin fyrir neðan Almannagjá of fá og ómerkt sem getur valdið vandræðum en tvívegis var bakkað á ferðamenn á bílastæðunum í fyrra en Ólafur Örn segist finna fyrir mikilli óánægju vegna aðstöðuleysisins.