Þrír menn voru um borð í jeppabifreið sem hafnaði ofan í Sultartangalóni í dag. Þeir komust af sjálfsdáðum úr bílnum og upp á garð við lónið.
Mbl.is greinir frá þessu.
Mennirnir voru fluttir með þyrlu á slysadeild Landspítalans en samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni var þyrla gæslunnar við æfingar skammt hjá þegar slysið varð.
Mennirnir eru ekki slasaðir en einn þeirra var með verk fyrir brjósti. Ekki er vitað hvað olli óhappinu en mennirnir voru ásamt stærri hópi í jeppaferð.