Fyrr í dag undirrituðu fulltrúar Sveitarfélagsins Ölfuss og fulltrúar Framkvæmdafélagsins Arnarhvols bindandi samkomulag um byggingu nýs miðbæjar í Þorlákshöfn.
Samkomulagið byggir á gildandi aðalskipulagi með áherslu á hvernig nýta má svæðið í kringum Selvogsbrautina til að skapa manneskjulegan og fallegan miðbæ, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Ölfusi.
„Í framhaldi af uppbyggjandi samtali milli sveitarfélagsins og Arnarhvols, um m.a. þá miklu uppbyggingu sem hér er að eiga sér stað lýsti Arnarhvoll áhuga sínum á að standa að metnaðarfullri uppbyggingu nýs miðbæjarkjarna í Þorlákshöfn. Við sem hér búum þekkjum vel hversu öflugt mannlífið í Þorlákshöfn er. Nýi miðbærinn okkar mun án vafa bjóða upp á umhverfi sem laðar til sín fólk, eykur þjónustustigið og eflir mannlíf og menningu. Ég er bjartsýnn á að við getum lokið hönnun og skipulagi á þessu svæði núna strax í haust og fljótlega út úr því geti framkvæmdir hafist,“ segir Elliði Vignsson, bæjarstjóri Ölfuss.
Stefnt að byggingu fjölnota menningarsalar
Hinn nýji miðbær mun rísa norðan Selvogsbrautar. Hann mótast af 200 metra langri göngugötu þar sem gert er ráð fyrir uppbyggingu á skrifstofum, verslunum, þjónustu og íbúðabyggð auk nauðsynlegra opinna svæða og torga sem styðja við mannlíf og menningu. Þá stefna aðilar samkomulagsins að samvinnu um byggingu fjölnota menningarsalar í hinum nýja miðbæ sem ef af yrði myndi m.a. nýtast fyrir tónlistarviðburði og til sýninga á listmunum, ljósmyndum, safnamunum og fl.
Samkomulagið við Arnarhvol er með þeim hætti að Arnarhvoll skuldbindur sig til uppbyggingar hins nýja miðbæjar á grundvelli deiliskipulags sem aðilar vinna í sameiningu þannig að á svæðinu rísi eftirsóknarverð, hagkvæm og aðlaðandi byggð sem styrki Sveitarfélagið Ölfus í sessi sem eftirsóknarverðan búsetukost. Skýrt er tekið fram að skipulagsvaldið er eftir sem áður allt á hendi sveitarfélagsins eins og vera ber. Þá greiðir Arnarhvoll allan kostnað við framkvæmdina þar með allan kostnað við gatnagerð, götulýsingu, yfirborðsfrágang og fleira.