Fulltrúar Bjargráðasjóðs verða í upplýsingamiðstöðinni að Heimalandi í dag kl. 12.00 – 14.00 til að veita íbúum upplýsingar og ráðgjöf.
Þjónustumiðstöðinni að Heimalandi er ætlað að veita íbúum í grennd við gosstöðvarnar á Eyjafjallajökli þjónustu og aðstoð við uppbyggingu á svæðinu.
Felst það meðal annars í hreinsunarstarfi og áframhaldandi skipulagi þess auk þess sem sett hefur verið upp miðstöð upplýsingagjafar að Heimalandi fyrir þá sem hafa orðið fyrir áhrifum vegna eldgossins. Upplýsingamiðstöðin er opin daglega í kringum hádegi en þar er einnig boðið upp á hádegismat fyrir íbúa og aðra sem vinna að uppbyggingarstarfinu.
Veðurstofa Íslands gerir ráð fyrir austlægri átt í dag, 8-13 m/s, en hvassara síðdegis. Gert er ráð fyrir lítilli úrkomu, en rigningu með köflum eftir hádegi. Búast má við lítilsháttar öskufalli norðvestur og síðar vestur af eldstöðinni.