Fagkeppni Meistarafélags kjötiðnaðarmanna var haldin í mars. Kjötiðnaðarmenn sendu inn vörur sínar sem voru dæmdar og í ljósi aðstæðna í samfélaginu vegna COVID-19 fengu þeir verðlaunin send heim án þess að komið væri saman.
Í frétt frá SS segir að það hafi verið mjög ánægjulegt að sjá hversu fagmenn Sláturfélags Suðurlands uppskáru sérlega vel í keppninni og titillinn Kjötmeistari Íslands féll í skaut Bjarka Frey Sigurjónssyni, kjötiðnaðarmeistara hjá SS á Hvolsvelli, sem var stigahæstur allra með 243 stig. Fast á hæla honum kom svo Steinar Þórarinsson einnig frá Sláturfélaginu með 241 stig.
Pylsur hafa notið vaxandi vinsælda síðustu ár og það var því gaman að Ostapylsan frá SS skyldi vera valin Besta matarpylsan 2020.
Frá SS fengu þessir kjötiðnaðarmenn verðlaun:
Benedikt Benediktsson
Besta varan úr svínakjöti: Rauðvínssalamí
Jónas Pálmar Björnsson
Besta varan úr folalda- og hrossakjöti: Fjalla-Cayen-grafið hrossafillé
og besta varan úr nautakjöti sem og í flokknum sælkeravörur:
Grafið nautafillé með lakkrískeim.
Oddur Árnason
Lambaorðan, besta varan úr lambakjöti: Tindfjallahangikjet
Steinar Þórarinsson
Besta varan í elduðum kjötvörum: Sviðasulta
Jón Sigurðsson
Besta varan í flokknum soðnar pylsur: Piparostapylsur með sveppum